Skip to product information
1 of 2

HairBurst

Shampoo & Conditioner for Dry, Damaged Hair Duo Set

Venjulegt verð 6.249 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 6.249 kr
Tilboð Vara uppseld
Tax included.

Tvenna fyrir fyrir þau sem eru með þurrt hár og hár sem er illa farið eftir notkun hitamótunartækja, hárlita eða annara umhverfis þátta.

Sjampóið ver hárlitinn þinn og gefur hárinu meiri glans og raka ásamt því að vinna gegn klofnum endum. Inniheldur einstaka blöndu af Amínó sýrum, Pólýmer, Fíkju extract og vatnsrofnu hveiti próteinum sem vinna öll saman við að gefa hárinu raka, bæta áferð þess og ýta undir heilbrigðari ásýnd og vöxt hársins. 

Hárnæringin inniheldur bæði Fíkju og möndlu olíur sem eru öflug andoxunarefni sem ýta undir heilbrigðan hárvöxt og styrkja hárið. Inniheldur einnig B5 vítamín sem vinnur að bættri áferð hársins og vinnur gegn slitnum endum. Hárnæring fyrir heilbrigðara, síðara og sterkara hár.

Ilmar af fíkjum og vanillu.

FYRIR HVERJA?
Hentar best þeim sem eru með þurrt hár og hár sem er illa farið eftir notkun hitamótunartækja, hárlita eða annara umhverfis þátta.

NOTKUN:

Nuddaðu litlu magni af sjampóinu í blautt hárið þar til það freyðir vel, nuddið vel í rótina og skolið svo úr. Við mælum með að greiða hárið fyrir sturtu ef það á að greiða það, til þess að draga úr líkum á brotnum endum. Eftir að sjampóið hefur verið notað er gott að nota hárnæringuna úr sömu línu fyrir bestan árangur.

Eftir að hafa skolað sjampóið vel úr er gott að setja næringuna í endana á hárinu og láta hana liggja í hárinu í nokkrar mínútur. Skolið vel úr hárinu í um 30 sekúndur, við mælum með að skola næringuna úr með köldu vatni til þess að gefa hárinu extra glans.

HairBurst

HairBurst er heil vörulína sem er hönnuð til þess að auka heilbrigði, þéttleika, styrkleika og sídd hársins þíns.

Vörurnar vinna gegn truflunum á vaxtarfasa hársins, sem margir þættir í okkar daglega lífi geta haft áhrif á.

Hairburst hefur undirgengist neytendaprófanir á virkni vörunnar og á gott safn af frábærum vitnisburðum frá ánægðum kúnnum.